7
Áköf deila um Jesú
Eftir þetta fór Jesús til Galíleu og ferðaðist frá einu þorpinu til annars. Hann vildi ekki vera í Júdeu því að leiðtogarnir þar sátu um líf hans. Brátt leið að laufskálahátíðinni, en það er ein hinna árlegu trúarhátíða Gyðinga. Bræður Jesú hvöttu hann til að fara til Júdeu á hátíðina og sögðu ertnislega:
„Farðu þangað, því að þá geta miklu fleiri séð kraftaverk þín. Þú verður ekki frægur af því að fela þig. Og fyrst þú ert svona mikill, skaltu reyna að sanna það fyrir heiminum!“ Bræður Jesú trúðu sem sagt ekki á hann.
Jesús svaraði: „Minn tími til að fara er enn ekki kominn. Þið getið hins vegar farið hvenær sem þið viljið, það breytir engu, því heimurinn er ekki á móti ykkur. Hann er á móti mér, því ég ásaka hann fyrir illt athæfi og syndir. Þið skuluð fara; ég kem seinna þegar minn tími er kominn.“ Af þessari ástæðu varð Jesús eftir í Galíleu.
10 En þegar bræður hans voru farnir til hátíðarinnar fór Jesús líka, en á laun og lét ekkert á sér bera. 11 Leiðtogar þjóðarinnar reyndu að finna hann á hátíðinni og héldu uppi spurnum um hann. 12 Fólkið ræddi mikið um hann sín á milli og sumir sögðu: „Hann er dásamlegur maður.“ Aðrir sögðu: „Nei, hann blekkir fólkið.“ 13 Enginn þorði að taka málstað hans opinberlega af ótta við leiðtoga þjóðarinnar.
14 Þegar hátíðin var hálfnuð gekk Jesús inn í musterið og predikaði opinberlega. 15 Leiðtogar þjóðarinnar undruðust orð hans og spurðu: „Hvaðan hefur hann þessa þekkingu? Hann hefur aldrei gengið í skóla hjá okkur.“
16 Jesús sagði þá við þá: „Ég kenni ekki eigin hugmyndir, heldur orð Guðs sem sendi mig. 17 Ef einhver ykkar vill gera vilja Guðs í raun og veru, þá mun hann örugglega sjá hvort boðskapur minn er frá Guði eða frá sjálfum mér. 18 Sá sem talar af sjálfum sér vonast eftir hrósi, en sá sem heiðrar þann sem sendi hann, er trúr og sannur. 19 Móse gaf ykkur lögin en hvers vegna hlýðið þið þeim þá ekki? Hvers vegna segið þið að ég brjóti þau og hver er ástæða þess að þið viljið lífláta mig?“
20 Fólkið svaraði: „Þú ert ekki með öllum mjalla! Hver er það sem situr um líf þitt?“
21-23 Jesús svaraði: „Ég læknaði mann á helgidegi og það kom ykkur á óvart, en samt vinnið þið sjálf á helgidögum þegar þið umskerið samkvæmt lögum Móse – reyndar er umskurnin eldri en lögmál Móse. Ef umskurnardag ber upp á helgidag, þá framkvæmið þið umskurnina eins og ekkert sé. Hvers vegna dæmið þið mig þá fyrir að lækna mann á helgidegi? 24 Hugsið þetta mál og þá munuð þið komast að raun um að ég hef á réttu að standa.“
25 Sumir íbúar Jerúsalem sögðu þá: „Er þetta ekki maðurinn sem leiðtogar okkar vilja feigan? 26 Hvernig stendur þá á því að hann fær að predika óáreittur á almannafæri og þeir gera enga athugasemd? Getur verið að þeir hafi loksins komist að raun um að hann sé Kristur? 27 En hvernig ætti hann annars að vera það? Við vitum, jú, hvar hann er fæddur, en þegar Kristur kemur mun enginn vita hvaðan hann kemur, hann mun birtast allt í einu.“
28 Þetta varð til þess að eitt sinn er Jesús var að predika í musterinu, kallaði hann hátt: „Já, þið þekkið mig og vitið hvar ég fæddist og hvar ég ólst upp, en ég tala máli þess sem þið þekkið ekki og hann er sannleikurinn. 29 Ég þekki hann því ég var hjá honum og hann sendi mig til ykkar.“ 30 Þegar leiðtogarnir heyrðu hann segja þetta leituðust þeir við að handtaka hann.
31 Margir þeirra sem komu reglulega í musterið trúðu á hann og sögðu: „Hvaða kraftaverk haldið þið að Kristur geri, sem þessi maður hefur ekki gert?“ 32 Þegar farísearnir heyrðu þetta sendu þeir og æðstu prestarnir lögregluna til að handtaka hann.
33 Þá sagði Jesús: „Bíðið með þetta! Mér ber að vera hér enn um stund, en að því loknu sný ég aftur til hans sem sendi mig. 34 Þið munuð leita mín en án árangurs, því að þangað sem ég fer komist þið ekki.“
35 Leiðtogarnir urðu undrandi á þessum tilsvörum og spurðu: „Hvert skyldi hann ætla? Skyldi hann ætla úr landi til að útbreiða kenningar sínar meðal Gyðinga í öðrum löndum, eða jafnvel meðal heiðingjanna? 36 Hvað á hann við þegar hann segir að við munum leita hans, en ekki finna? Og hvað þýðir þetta: Þið komist ekki þangað sem ég fer?“
37 Síðasta daginn – helgasta dag þjóðarinnar – hrópaði Jesús út yfir mannfjöldann: „Ef nokkurn þyrstir þá komi hann til mín og drekki, 38 því Biblían segir um þann sem trúir á mig, að frá hans innra manni muni streyma lækir lifandi vatns.“ 39 Hér átti hann við heilagan anda, sem þeir mundu fá, sem tryðu á hann. En ennþá var andinn ekki gefinn, því að Jesús hafði þá ekki enn snúið aftur til dýrðar sinnar á himnum.
40 Þegar mannfjöldinn heyrði þetta sögðu sumir: „Þessi maður er áreiðanlega spámaðurinn, sem á að koma á undan Kristi.“ 41-42  Aðrir sögðu: „Hann er Kristur.“ Enn aðrir sögðu: „Það er útilokað að hann sé Kristur. Haldið þið að Kristur komi frá Galíleu? Biblían segir að Kristur muni verða af ætt Davíðs og fæðast í Betlehem þar sem Davíð fæddist.“
43 Fólkið hafði sem sagt ýmsar skoðanir á Jesú. 44 Sumir vildu láta handtaka hann, en þó gerði það enginn.
45 Musterislögreglan, sem send hafði verið til að handtaka hann, sneri því tómhent aftur til æðstu prestanna og faríseanna. „Hvers vegna komið þið ekki með hann?“ spurðu þeir reiðilega.
46 „Hann segir svo margt stórkostlegt!“ svöruðu þeir. „Við höfum aldrei áður heyrt neitt þessu líkt.“
47 „Jæja, er þá líka búið að villa um fyrir ykkur?“ spurðu farísearnir hæðnislega. 48 „Hver af okkar leiðtogum eða faríseunum trúir að hann sé Kristur? 49 Fólkið trúir því, satt er það, en það er heimskt og hefur ekkert vit á slíkum hlutum, enda hvílir bölvun yfir því!“
50 Þá spurði Nikódemus, einn af leiðtogum þjóðarinnar, sem heimsótti Jesú eitt sinn á laun til að ræða við hann: 51 „Er leyfilegt að dæma nokkurn áður en hann hefur verið ákærður?“
52 „Ha?“ spurðu hinir, „ert þú kannski einn af þessum auvirðilegu Galíleumönnum? Lestu Biblíuna – enginn spámannanna kom frá Galíleu!“
53 Eftir þetta leystist fundurinn upp og fór hver heim til sín.